14

Starfsfólk skóla, nemendur og foreldrar mynda skólasamfélagið í hverjum skóla. Mikilvægt er að þessir hópar vinni vel saman að mótun þessa samfélags og þeirra umgengnishátta sem eiga að einkenna samskipti innan skólans og utan. Til þess að það gangi vel þarf að ræða reglulega um áherslur og koma sér saman um meginviðmið.

Samkvæmt barnalögum teljast foreldrar þeir sem fara með forsjá barns. Foreldrar bera ábyrgð á uppeldi barna sinna. Á þeim hvílir sú skylda að börnin sæki skóla og að þau séu eins móttækileg fyrir þeirri menntun sem skólinn býður og framast er unnt. Skólinn aðstoðar foreldra í uppeldishlutverkinu og býður fram menntunartækifæri. Menntun og velferð nemenda er sameiginlegt verkefni heimila og skóla og samstarfið þarf að byggjast á gagnkvæmri virðingu, trausti, og upplýsingamiðlun beggja aðila, sameiginlegum ákvörðunum og samábyrgð. Mesta áherslu ber að leggja á samstarf heimila og skóla um hvern einstakling, nám hans og velferð og að heimili og skóli séu vettvangur menntunar. Einnig ber að leggja áherslu á samstarf í einstökum bekkjardeildum, námshópum og árgöngum, bæði um nám, félags- og tómstundastarf, velferð nemenda, bekkjaranda og meginviðmiðanir í uppeldisstarfi skólans. Skólastjórnendur og umsjónarkennarar bera meginábyrgð á að halda uppi virku samstarfi með aðstoð annarra kennara. Þeir skulu kappkosta að skapa tækifæri til að auka hlutdeild foreldra í skólastarfi og stuðla að virku samstarfi á jafnréttisgrundvelli.

Foreldrar skulu eiga kost á að taka þátt í námi barnsins, svo og í skólastarfinu almennt. Það er skylda foreldra að veita grunnskóla upplýsingar um barnið sem kunna að skipta máli fyrir skólastarfið og velferð þess. Foreldrar bera ábyrgð á því að börn þeirra sinni því heimanámi sem skólinn og foreldrar hvers einstaks barns hafa orðið ásátt um og að frístundastarf og annað starf utan skóla komi ekki niður á námi barnanna.

Loks er mikilvægt að traust samstarf sé milli heimila og skóla um skólastarfið í heild, t.d. um meginviðmiðanir í hegðun og umgengni, skólabrag, áhersluatriði í skólastefnu hvers skóla eða sveitarfélags. Gert er ráð fyrir að foreldrar taki þátt í mótun skólasamfélagsins og vinni að því með stjórnendum skóla, kennurum og öðrum starfsmönnum skóla að koma markmiðum skólastarfs í framkvæmd og taki höndum saman til að tryggja sem best uppeldisskilyrði barna og almenna velferð þeirra.

Öflugt foreldrastarf og sterk samstaða um grundvallarviðmið er besta forvörnin gegn hvers kyns vá, t.d. neyslu fíkniefna og óæskilegri hegðun. Ef foreldrar nemenda í bekk eða skóla ná að stilla saman strengi um meginviðmiðanir í uppeldismálum aukast líkur á árangri í skólastarfinu, þ.e. námsárangri, almennri velferð nemenda og forvörnum.

  • Gagnkvæm og virk upplýsingagjöf stuðlar að trausti milli foreldra og starfsfólks skóla og hjálpar þeim að deila ábyrgð og taka ákvarðanir sem lúta að velferð nemenda. Með auknum kynnum foreldra af daglegu starfi í skólanum og skipulegri samvinnu um skólastarfið aukast líkur á virkri þátttöku foreldra í tengslum við ákvarðanir og ábyrgð. Aukin hlutdeild foreldra stuðlar að bættum námsárangri barna og bættri líðan þeirra. Brýnt er að skólar gefi reglulega skýrar upplýsingar um skólastarfið og áætlanir sem liggja fyrir um starfsemi skólans. Þetta má gera með ýmsum hætti, t.d. í foreldraviðtölum, á sameiginlegum kynningarfundum með foreldrahópum, í skólanámskrá, gegnum rafræn samskiptaforrit og á vefsíðu skólans. Foreldrar skulu upplýsa skólann sem best um hagi barnsins og almennan þroska og greina frá þeim þáttum sem geta haft áhrif á líðan þess og frammistöðu í skólanum.