13

Námslok námsbrauta í framhaldsskóla raðast á hæfniþrep. Með röðun þeirra á hæfniþrep eru dregnar fram mismunandi kröfur um hæfni nemanda að loknu námi. Hæfniþrepin mynda þannig ramma um mismunandi kröfur við námslok án tillits til þess hvort námið er bóknám, listnám eða starfsnám.

Í lýsingu á hæfniþrepum er annars vegar lögð áhersla á lykilhæfni og grunnþætti og hins vegar aukna sérhæfingu í námi. Hæfniþrepin eru skilgreind með nemendur í huga óháð skólastigi og framkvæmdaraðila. Hæfniþrepin eiga að gefa vísbendingu um viðfangsefni og námskröfur og eru þannig leiðbeinandi við gerð áfanga- og námsbrautalýsinga. Hæfniþrepin eru einnig upplýsandi fyrir hagsmunaaðila, jafnt nemendur sem atvinnulíf og næsta skólastig sem tekur við nemendum að loknu námi.

Á framhaldsskólastigi eru þrepin fjögur. Fyrsta þrepið er á mörkum grunn- og framhaldsskóla og felur í sér almenna menntun. Þar tengjast kröfur um lýðræði, mannréttindi, jafnrétti og sjálfbærni daglegu lífi og virkni einstaklingsins í þjóðfélaginu. Nemandi sem hefur náð þessari lykilhæfni sýnir í daglegu lífi og samskiptum að hann beri virðingu fyrir öðru fólki, lífsgildum þess og mannréttindum. Nám á fyrsta þrepi getur enn fremur falið í sér almennan undirbúning undir störf í atvinnulífinu sem ekki krefjast mikillar sérhæfingar og eru unnin undir stjórn eða eftirliti annarra. Á námsbrautum með námslok á fyrsta hæfniþrepi getur krafa um námsframvindu verið óhefðbundin og námsmat fyrst og fremst leiðbeinandi um hvernig nemendur geta náð settum markmiðum.

Námslok á þrepi tvö einkennast af fremur stuttri sérhæfingu, sem miðar einkum að faglegum undirbúningi undir frekara nám eða störf sem krefjast þess að starfsmenn geti sýnt ábyrgð og sjálfstæði innan ákveðins ramma og/eða undir yfirstjórn annarra. Þá er gert ráð fyrir að hinni almennu hæfni til að vera virkur þjóðfélagsþegn sé náð og sjónum beint að virkni og ábyrgð innan vinnuumhverfis.

Námslok á þriðja hæfniþrepi einkennast af enn meiri kröfum um þekkingu, leikni og hæfni tengdar sérhæfingu og fagmennsku. Þar fer fram sérhæfður undirbúningur undir háskólanám, lögvarin störf, sérhæft starfsnám og listnám. Eftir námslok á þriðja þrepi eiga nemandur að geta unnið sjálfstætt, borið ábyrgð á skipulagi og úrlausn verkefna og metið eigin störf.

Fjórða þrepið felur í sér nám sem ýmist fer fram innan eða á vegum framhaldsskóla eða háskóla. Námslok á fjórða þrepi einkennast ýmist af aukinni sérhæfingu og/eða útvíkkun sérhæfingar í tengslum við stjórnun, leiðsögn, þróun eða nýsköpun.

Ráðuneytið birtir yfirlit yfir röðun staðfestra námsloka á hæfniþrep.

Hæfniþrep 1

Námsbrautir eru að jafnaði skipulagðar sem  30 til 120 fein. og taka yfirleitt1 til 4 annir.  Þær geta þó verið allt að 240 fein og skipulagðar sem 8 annir fyrir nemendur með þroskahömlun.

Námslok eru til dæmis framhaldsskólapróf og önnur lokapróf.

Námið felur í sér almenna menntun, þar sem lögð er áhersla á alhliða þroskanemenda og lýðræðislega virkni.

Námsbraut, sem er skilgreind með námslok á fyrsta hæfniþrepi, vinnur að þeim þekkingar-, leikni- og hæfniviðmiðum sem talin eru upp hér að neðan. Viðmiðin skulu einnig höfð til hliðsjónar við gerð námsáfanga sem flokkast á fyrsta hæfniþrep. 

Þekking

Nemandi býr yfir:

fjölbreyttum orðaforða til að geta tjáð skoðanir sínar og rökstutt þær,

þekkingu á samfélagslegum gildum, siðgæði, mannréttindumog jafnrétti,

þekkingu sem tengist því að vera virkur og ábyrgur borgari í lýðræðislegu samfélagi,

þekkingu sem tengist íslensku umhverfi í alþjóðlegu samhengi(s.s. menningu, samfélagi, náttúruog sjálfbærni),

þekkingu sem nýtist til undirbúnings fyrir frekara nám,

orðaforða til að geta tjáð sig á einfaldan hátt á erlendum tungumálum og innsýn í viðkomandi menningarheima,

þekkingu og skilning á  áhrifum fyrirmynda og staðalmynda á eigin ímynd og lífsstíl.

Leikni

Nemandi hefur öðlast leikni til að:

tjá sig á skýran, ábyrgan og skapandi hátt,

taka þátt í samræðum, færa rök fyrir máli sínu og virða skoðanir annarra,

vera verklega sjálfbjarga í daglegu lífi,

beita skapandi hugsun í öllu starfi,

vinna á sjálfstæðan, ábyrgan og skapandi hátt undir leiðsögn,

nýta sér margvíslega tækni í þekkingarleit og miðlun þekkingar      á ábyrgan og gagnrýninn hátt,

nota fjölbreyttar námsaðferðir,

umgangast umhverfi sitt með sjálfbærni í huga.

HÆFNI

Nemandi:

getur tjáð hugsanir sínar og tilfinningar í rökréttu samhengi,

getur tjáð sig á einfaldan hátt á erlendum tungumálum,

hefur skýra sjálfsmynd og gerir sér grein fyrir hvernig hann getur hagnýtt sterkar hliðar sínar á skapandi hátt,

getur átt jákvæð og uppbyggileg samskipti og samstarf við annað fólk,

ber virðingu fyrir lífsgildum, mannréttindum og jafnrétti,

ber virðingu fyrir náttúru og umhverfi í alþjóðlegu samhengi,

tekur ábyrga afstöðu til eigin velferðar, líkamlegrar og andlegrar

hefur tileinkað sér jákvætt viðhorf til náms,

getur verið virkur og ábyrgur borgari í lýðræðislegu nær– og fjærsamfélagi,

getur tengt þekkingu sína og leikni við daglegt líf, tækni og vísindi.

Hæfniþrep 2

Námsbrautir eru að jafnaði skipulagðar sem 90 til 120 fein. og taka yfirleitt um        3 til 4 annir.

Námslok eru til dæmis próf til starfsréttinda, framhaldsskólapróf og önnur lokapróf.

Námið felur í sér undirbúning undir sérhæfð  og lögvarin störf og sérhæft aðfaranám.

Námsbraut, sem er skilgreind með námslok á öðru hæfniþrepi, vinnur að þeim þekkingar-, leikni- og hæfniviðmiðum sem talin eru upp hér að neðan. Viðmiðin skulu einnig höfð til hliðsjónar við gerð námsáfanga sem flokkast á annað hæfniþrep.

Þekking

Nemandi býr yfir:

fjölbreyttum orðaforða til að geta tjáð skoðanir sínar og rökstutt þær í daglegu lífi og í tengslum við sérþekkingu og/eða starfsgrein,

þekkingu sem tengist því að vera ábyrgur þátttakandi í atvinnulífinu,

þekkingu sem tengist umhverfinu og varðar sérþekkingu og/eða starfsgrein,

þekkingu sem nýtist til undirbúnings fyrir frekara nám,

orðaforða til að geta tjáð sig á erlendum tungumálum í tengslum við sérþekkingu krefjist hún þess.

Leikni

Nemandi hefur öðlast leikni til að:

tjá sig á skýran, ábyrgan og skapandihátt um sérhæfða þekkingu sínaog/eða starfsgrein,

skipuleggja einfalt vinnuferli starfsgreinarog/eða sérþekkingar og beita viðeigandi tækni í því sambandi,

sýna frumkvæði og sjálfstæði í grunnvinnubrögðum sérþekkingarog/eða starfsgreinar,

taka þátt í samræðum um sérhæfða þekkingu sína og/eða starfsgrein.

HÆFNI

Nemandi:

getur tjáð skoðanir sínar og skýra verklag tengt skilgreindu starfsumhverfi á ábyrgan, sjálfstæðan og skýran hátt,

getur tjáð sig á einfaldan og skýran hátt á erlendum tungumálum,

ber virðingu fyrir grundvallarreglum starfsumhverfis,

býr yfir ábyrgð gagnvart starfiog starfsumhverfi,

hefur skýra sjálfsmynd og gerir sér grein fyrir nýjum tækifærum í umhverfinu,

getur verið virkur og ábyrgur borgari í lýðræðislegu samfélagi og innan samfélags sérþekkingar og/eða starfsgreinar,

getur tengt þekkingu sína og leikni við starfsumhverfi og daglegt líf.

Hæfniþrep 3

Námsbrautir eru að jafnaði skipulagðar sem 150 til 240 fein. og taka yfirleittum 5 til 8 annir.

Námslok eru til dæmis stúdentspróf, próf til starfsréttinda og önnur lokapróf.

Námið felur í sér sérhæfðan undirbúning undir háskólanám, lögvarin störf,sérhæft starfsnám og listnám.

Námsbraut, sem er skilgreind með námslok á þriðja hæfniþrepi, vinnur að þeim þekkingar-, leikni- og hæfniviðmiðum sem talin eru upp hér að neðan. Viðmiðin skulu einnig höfð til hliðsjónar við gerð námsáfanga sem flokkast á þriðja hæfniþrep.

Þekking

Nemandi býr yfir:

fjölbreyttum orðaforða til að geta tjáð skoðanir sínar og rökstutt þær í daglegu lífi og í tengslum við sérþekkinguog/eða starfsgrein,

sérhæfðri þekkingu sem nýtist í starfi og/eða til undirbúnings fyrir frekara nám,

þekkingu sem tengist því að vera virkur og ábyrgur borgari í samfélagi sérþekkingar og/eða starfsgreinar,

þekkingu sem tengist umhverfinu í alþjóðlegu samhengi og varðar sérþekkingu og/eða starfsgrein,

orðaforða og þekkingu í erlendu tungumáli sem nýtist til frekara náms eða í tengslum við sérþekkingu krefjist hún þess.

Leikni

Nemandi hefur öðlast leikni til að:

tjá sig á skýran, gagnrýninn og skapandi hátt um sérhæfða þekkingu sínaog/eða starfsgrein,

skipuleggja vinnuferli, beita viðeigandi tækni og aðferðum starfsgreinar og/eða sérþekkingar á ábyrgan hátt,

sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum við að leita lausna innan sérþekkingar og/eða starfsgreinar,

taka ábyrgan þátt í samræðum um sérhæfða þekkingu sínaog/eða starfsgrein.

HÆFNI

Nemandi:

getur tjáð skoðanir sínar og skýra verklag tengt skilgreindu starfsumhverfi á ábyrgan, gagnrýninn og skýran hátt,

getur tjáð sig á erlendu tungumáli sé þess krafist í starfi eða vegna frekara náms,

býr yfir siðferðilegri ábyrgð í skapandi starfi,

býr yfir ábyrgð gagnvart starfsumhverfi og hagnýtingu almennrar þekkingar sinnar,

getur nýtt þekkingu sína til að greina ný tækifæri í umhverfinu,

býr yfir hæfni til að geta tekist á við frekara nám,

getur verið virkur og ábyrgur borgari í lýðræðislegu samfélagi sérþekkingar og/eða starfsgreinar,

býr yfir hæfni til að meta eigið vinnuframlag,

sjái menntun sína í alþjóðlegu samhengi,

getur tengt þekkingu sína og leikni við tækni og vísindi.

Hæfniþrep 4

Námsbrautir eru að jafnaði skipulagðar sem 30 til 120 fein. og taka yfirleitt um1 til 4 annir. Þær eru skipulagðar sem framhald af námslokum af þriðja hæfniþrepi.

Námslokin eru skilgreind sem viðbótarnám við framhaldsskóla.

Námið felur í sér aukna faglega sérhæfingu og/eða dýpkun í tengslum við þróunog nýsköpun.

Námsbraut, sem er skilgreind með námslok á fjórða hæfniþrepi, vinnur að þeim þekkingar-, leikni- og hæfniviðmiðum sem talin eru upp hér að neðan. Viðmiðinskulu einnig höfð til hliðsjónar við gerð námsáfanga sem flokkast á fjórða hæfniþrep.

Þekking

Nemandi býr yfir:

sérhæfðri þekkingu sem nýtist til framgangs í starfi og/eða til undirbúnings fyrir frekara nám,

sérhæfðum orðaforða í erlendu tungumáli sem nýtist til framgangs í starfi og/eða til undirbúnings fyrir frekara nám.

Leikni

Nemandi hefur öðlast leikni til að:

leiðbeina og miðla þekkingu sinni á skýran og skapandi hátt,

skipuleggja vinnuferli, beita viðeigandi tækni og þróa aðferðir starfsgreinarog/eða sérþekkingar á ábyrgan hátt,

sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum við að greina aðstæðurog bregðast við á viðeigandi, raunhæfanog skapandi hátt.

HÆFNI

Nemandi:

getur tjáð sig um sérhæfða þekkingu sína á íslensku og erlendu tungumáli sé þess krafist í starfi eða vegna frekara náms,

getur tekið þátt í samræðum á grundvelli sérhæfðrar þekkingar og leikni á ábyrgan, gagnrýninnog skýran hátt,

býr yfir siðferðislegri ábyrgð á hagnýtingu og þróun sérhæfðrar þekkingar sinnar gagnvart starfsumhverfi,

býr yfir hæfni til að vera virkur og ábyrgur í samfélagi sérþekkingarog/eða starfsgreinar,

getur metið eigið vinnuframlag og annarra í tengslum við starfsumhverfi og/eða sérþekkingu á gagnrýninnog uppbyggilegan hátt,

getur tengt þekkingu sína og leikni við alþjóðlegt umhverfi.

 

  • Mikilvirk leið við að virkja ákvæði um grunnþætti í skólastarfi eru ýmis samstarfsverkefni við innlenda sem erlenda aðila. Þetta geta til dæmis verið samstarfsverkefni við aðra skóla, nærsamfélagið og félagasamtök.

    Ýmsir möguleikar eru á samstarfsverkefnum milli skóla innanlands sem utan auk nemendaskipta. Enn fremur gefst framhaldsskólum oft kostur á þátttöku í ráðstefnum, rannsóknavinnu og alþjóðlegum samkeppnum skóla.

    Alla þessa þætti má nýta við að virkja félagsleg og menningarleg tengsl nemenda við samfélög nær og fjær, auk þess að efla vitund þeirra um sjálfbærni, læsi og sköpun.