8

 

 

 

  • Val í námi er hluti af skólastefnu hvers sveitarfélags og skóla. Eitt af hlutverkum skólaráðs er að fjalla um stefnumótun og sérkenni skóla og þar með framboð valgreina í grunnskóla. Við ákvörðun um framboð og fjölbreytni valgreina er mikilvægt að taka mið af staðháttum, menningu og sögu nærsamfélagsins.

    Valgreinar eru hluti af skyldunámi. Í 8., 9. og 10. bekk grunnskóla skal nemendum gefinn kostur á að velja námsgreinar og námssvið sem svarar til allt að fimmtungi námstímans en skólar geta skipulagt mismunandi hlutfall valgreina eftir árgöngum og skal slíkt koma fram í árlegri starfsáætlun. Tilgangurinn með valfrelsi nemenda á unglingastigi er að hægt sé að laga námið sem mest að þörfum einstaklingsins og gera hverjum og einum kleift að leggja eigin áherslur í námi miðað við áhugasvið og framtíðaráform í samvinnu við foreldra, kennara og námsráðgjafa.

    Val í námi skal miða að skipulegum undirbúningi fyrir nám í framhaldsskóla og taka mið af undirbúningi fyrir bóknám, starfsmenntun, verknám og list- og tækninám. Í þessu skyni gefst nemendum kostur á að dýpka þekkingu sína á þeim námssviðum eða innan lögboðinna námsgreina. Einnig eiga nemendur að geta valið um viðfangsefni sem einkum miða að því að víkka sjóndeildarhring þeirra, stuðla að aukinni lífsfyllingu eða dýpka þekkingu, leikni og hæfni sína á tilteknum sviðum í samræmi við áhuga þeirra.

    Skólar skulu gera grein fyrir tilhögun valgreina í starfsáætlun að fenginni umsögn skólaráðs og samþykki skólanefndar og kynna nemendum og foreldrum. Þar skal skilgreina markmið valgreina sem í boði eru, leggja fram kennsluáætlanir, yfirlit yfir námsefni og ákvarðanir um námsmat. Framboð valgreina skal koma fram í starfsáætlun skóla.

    Að ósk foreldra er heimilt að meta sem nám tímabundna þátttöku nemenda í atvinnulífi og reglubundna þátttöku í félagslífi, íþróttum eða skipulögðu sjálfboðastarfi enda falli það að markmiðum skólastarfs. Einnig er heimilt að meta skipulagt nám, sem stundað er utan grunnskóla, til valgreina, t.d. nám við framhaldsskóla, listaskóla og málaskóla. Í hverju tilviki metur viðkomandi skóli umfang slíks náms og gæta þarf jafnræðis í afgreiðslu mála. Við það skal miðað að það nemi ekki meira en sem svarar 160 mín. vikulega á hverju skólaári á unglingastigi og er þá heimilt að meta slíkt til valgreina hjá viðkomandi nemendum.