15

Meðal meginatriða nýrrar menntastefnu, sem mótuð var með gildistöku laga um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla 2008, var að auka svigrúm, sveigjanleika og samfellu á milli skólastiga og innan hvers skólastigs. Lögð er áhersla á að grunnskólinn komi betur til móts við ólíkar þarfir barna en það kallar á að svigrúm í skipulagi náms sé aukið, þ.m.t. námslengd og skil milli skólastiga. Helstu markmið samstarfs og tengsla milli skólastiga eru að skapa samfellu í námi barna, koma til móts við þarfir þeirra og stuðla að markvissari uppbyggingu náms. Einnig er markmiðið að treysta gagnkvæma þekkingu og skilning á starfi kennara og námi nemenda og stuðla að vellíðan og öryggi barna þegar þau flytjast milli skólastiga.

  • Til þess að koma til móts við ólíkar þarfir barna þarf svigrúm í skipulagi náms, þ.m.t. námslengd. Börn geta, með heimild skólastjóra grunnskóla, hafið grunnskólanám fyrir 6 ára aldur. Áður en slík ákvörðun er tekin er brýnt að starfsfólk viðkomandi leikskóla og grunnskóla og foreldrar hafi fjallað um málið. Samkvæmt lögum um leikskóla og grunnskóla ber sveitarfélögum að koma á samstarfi milli leik- og grunnskóla. Í skólanámskrám skal gera grein fyrir samstarfinu og hvernig standa skuli að aðlögun barna og færslu milli skólastiga. Skólaganga barna á að mynda samfellu þannig að reynsla og nám á fyrri skólastigum nýtist á þeim næstu. Þegar börn byrja í grunnskóla þarf að byggja á fyrra námi og reynslu þeirra úr leikskólanum. Sú hæfni, sem börnin öðluðust í leikskóla, verður því þannig sá grunnur sem námið í grunnskóla byggist á. Farsæll flutningur barna úr leikskóla í grunnskóla felur einnig í sér undirbúning og aðlögun. Leikskólabörn þurfa að fá tækifæri til að kynnast væntanlegum grunnskóla á meðan þau eru enn í leikskóla og líta skal á fyrstu vikur grunnskólagöngunnar sem tímabil aðlögunar og undirbúnings.

    • Tengsl leikskóla og grunnskóla er samstarfsverkefni foreldra og kennara beggja skólastiga þar sem velferð barnsins er í brennidepli. Kennarar á báðum skólastigum þurfa að kynna sér nám og starfsaðferðir hvers annars þannig að börn upplifi samfellu milli leikskóla og grunnskóla. Til þess að tryggja að svo verði þurfa leikskólar og grunnskólar að vinna áætlun sem felur í sér sameiginlegar áherslur beggja skólastiga samkvæmt aðalnámskrá sem og ákvarðanir um verkferla og ábyrgð á framkvæmdinni. Birta skal slíka áætlun í skólanámskrám skóla á báðum skólastigum.