15

Meðal meginatriða nýrrar menntastefnu, sem mótuð var með gildistöku laga um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla 2008, var að auka svigrúm, sveigjanleika og samfellu á milli skólastiga og innan hvers skólastigs. Lögð er áhersla á að grunnskólinn komi betur til móts við ólíkar þarfir barna en það kallar á að svigrúm í skipulagi náms sé aukið, þ.m.t. námslengd og skil milli skólastiga. Helstu markmið samstarfs og tengsla milli skólastiga eru að skapa samfellu í námi barna, koma til móts við þarfir þeirra og stuðla að markvissari uppbyggingu náms. Einnig er markmiðið að treysta gagnkvæma þekkingu og skilning á starfi kennara og námi nemenda og stuðla að vellíðan og öryggi barna þegar þau flytjast milli skólastiga.

  • Til þess að koma til móts við ólíkar þarfir barna þarf svigrúm í skipulagi náms, þ.m.t. námslengd. Börn geta, með heimild skólastjóra grunnskóla, hafið grunnskólanám fyrir 6 ára aldur. Áður en slík ákvörðun er tekin er brýnt að starfsfólk viðkomandi leikskóla og grunnskóla og foreldrar hafi fjallað um málið. Samkvæmt lögum um leikskóla og grunnskóla ber sveitarfélögum að koma á samstarfi milli leik- og grunnskóla. Í skólanámskrám skal gera grein fyrir samstarfinu og hvernig standa skuli að aðlögun barna og færslu milli skólastiga. Skólaganga barna á að mynda samfellu þannig að reynsla og nám á fyrri skólastigum nýtist á þeim næstu. Þegar börn byrja í grunnskóla þarf að byggja á fyrra námi og reynslu þeirra úr leikskólanum. Sú hæfni, sem börnin öðluðust í leikskóla, verður því þannig sá grunnur sem námið í grunnskóla byggist á. Farsæll flutningur barna úr leikskóla í grunnskóla felur einnig í sér undirbúning og aðlögun. Leikskólabörn þurfa að fá tækifæri til að kynnast væntanlegum grunnskóla á meðan þau eru enn í leikskóla og líta skal á fyrstu vikur grunnskólagöngunnar sem tímabil aðlögunar og undirbúnings.

    • Við lok leikskóla liggja fyrir ýmsar upplýsingar um börnin. Til að tryggja að byggt sé á fyrra námi og reynslu leikskólabarna þegar þau koma í grunnskólann, og aðlögun þeirra verði eins og best verður á kosið, er gert ráð fyrir að tilteknar upplýsingar um hvert barn fylgi þeim í grunnskólann. Þetta getur t.d. verið í formi ferilmappa sem börnin hafa sjálf tekið þátt í að móta. Foreldrar eru mikilvægir tengiliðir milli skólastiganna og miðla upplýsingum um börn sín og leikskólagöngu þeirra. Þeir eiga jafnframt rétt á að fá vitneskju um þau gögn sem fylgja barninu úr leikskólanum í grunnskólann og gefast kostur á að bregðast við þeim.