16

Nám samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla er skyldunám og því ekki um undanþágur að ræða frá aðalnámskrá. Þó eru í grunnskólalögum nokkur ákvæði sem heimila undanþágur frá skyldunámi og fyrirmælum aðalnámskrár.

Meginreglan er sú að börn byrja í grunnskóla á því almanaksári sem þau ná sex ára aldri. Samkvæmt bæði leik- og grunnskólalögum má þó flýta eða seinka skólabyrjun. Skólastjóri grunnskóla getur að uppfylltum ákveðnum skilyrðum heimilað að barn hefji skólagöngu fimm ára eða sjö ára.

Grunnskólalög heimila einnig að nemandi ljúki öllu námi grunnskóla á skemmri tíma en tíu árum. Hér er átt við að bráðgerir nemendur geti útskrifast úr grunnskóla fyrr en aldur þeirra segir til um. Er það lagt í hendur skólans með aðstoð sérfræðiþjónustu sveitarfélaga og að frumkvæði foreldra eða fengnu samþykki þeirra að meta hvenær og hvernig flýting af þessu tagi fer fram. Nemendur þurfa að ljúka öllu námi grunnskóla samkvæmt aðalnámskrá áður en þeir útskrifast úr grunnskóla á skemmri tíma en 10 árum. Þrátt fyrir heimild um að ljúka grunnskóla á skemmri tíma en tíu árum ber grunnskólum að bjóða bráðgerum nemendum upp á að dýpka þekkingu sína í námssviðum grunnskólans eða á fjölbreytt val í öðrum greinum, allt eftir áhuga þeirra.

  • Meginmarkmið með fjar- og dreifnámi í grunnskóla ætti að vera að gefa þeim nemendum, sem það kjósa, tækifæri til að stunda nám óháð búsetu. Hér er einkum átt við nám sem ekki er í boði viðkomandi skóla, s.s. nám í tungumálum fyrir nemendur af erlendum uppruna og valnám af ýmsum toga. Einnig er um að ræða nemendur sem hafa til þess forsendur að taka staka áfanga í framhaldsskóla í fjar- og dreifnámi samhliða námi í grunnskóla. Til að stuðla að sveigjanleika á mörkum grunnskóla og framhaldsskóla er æskilegt að grunnskólanemendum standi til boða fjar- eða dreifnám í framhaldsskóla sem hluta af námi sínu í grunnskóla án þess að þurfa að greiða fyrir það sérstaklega. Gera skal grein fyrir fyrirkomulagi fjar- og dreifnáms í skólanámskrá.