16

Nám samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla er skyldunám og því ekki um undanþágur að ræða frá aðalnámskrá. Þó eru í grunnskólalögum nokkur ákvæði sem heimila undanþágur frá skyldunámi og fyrirmælum aðalnámskrár.

Meginreglan er sú að börn byrja í grunnskóla á því almanaksári sem þau ná sex ára aldri. Samkvæmt bæði leik- og grunnskólalögum má þó flýta eða seinka skólabyrjun. Skólastjóri grunnskóla getur að uppfylltum ákveðnum skilyrðum heimilað að barn hefji skólagöngu fimm ára eða sjö ára.

Grunnskólalög heimila einnig að nemandi ljúki öllu námi grunnskóla á skemmri tíma en tíu árum. Hér er átt við að bráðgerir nemendur geti útskrifast úr grunnskóla fyrr en aldur þeirra segir til um. Er það lagt í hendur skólans með aðstoð sérfræðiþjónustu sveitarfélaga og að frumkvæði foreldra eða fengnu samþykki þeirra að meta hvenær og hvernig flýting af þessu tagi fer fram. Nemendur þurfa að ljúka öllu námi grunnskóla samkvæmt aðalnámskrá áður en þeir útskrifast úr grunnskóla á skemmri tíma en 10 árum. Þrátt fyrir heimild um að ljúka grunnskóla á skemmri tíma en tíu árum ber grunnskólum að bjóða bráðgerum nemendum upp á að dýpka þekkingu sína í námssviðum grunnskólans eða á fjölbreytt val í öðrum greinum, allt eftir áhuga þeirra.

  • Samkvæmt grunnskólalögum er skólastjóra heimilt að veita einstökum nemendum undanþágu frá skyldunámi í tiltekinni námsgrein ef gild rök mæla með því. Þá er t.d. átt við undanþágu nemenda með annað móðurmál en íslensku frá skyldunámi í dönsku. Þetta á einnig við um unglinga sem lengi hafa verið búsettir erlendis. Þá er hægt að veita nemendum með sérþarfir eða fötlun undanþágu frá tilteknum námsgreinum að höfðu samráði við sérfræðinga. Æskilegt er að nemendum sé boðið upp á önnur námstækifæri í staðinn, t.d. nám í eigin móðurmáli eða íslensku. Einnig er hægt að nýta þessa undanþáguheimild fyrir nemendur sem hafa sýnt afburðaárangur á ákveðnu sviði, t.d. eru í yngri landsliðum í íþróttum eða í listnámi, samanber leiðbeinandi reglur fyrir skóla um meðferð slíkra mála sem birtar eru hér að neðan.

    Mikilvægt er að skólinn sýni nærgætni og skilning þegar fjallað er um málefni sem tengjast heimilum. Þetta á sérstaklega við um trúar- og lífsskoðanir. Með hliðsjón af sérstöðu þessara þátta, einkum trúfrelsi, er heimilt að veita einstökum nemendum undanþágu frá ákveðnum þáttum skyldunáms sem tengjast trúar- og lífsskoðunum, að beiðni foreldra, ef gild rök eru fyrir slíkri undanþágu. Grunnskólar skulu leitast við að haga störfum sínum þannig að nemendur þurfi ekki að fá undanþágu frá ákveðnum þáttum skólastarfs vegna trúar- og lífsskoðana sinna.

    Hafi nemandi fengið undanþágu frá skyldunámsgrein í grunnskóla er eðlilegt að slík undanþága gildi áfram í sömu námsgreinum í framhaldsskóla.

    Leiðbeinandi reglur um verklag grunnskóla vegna beiðni foreldra um undanþágu frá skyldunámi í tiltekinni námsgrein, samkvæmt 15. gr. grunnskólalaga:

    • Umsókn verður að vera skrifleg. Foreldrar nemandans og skólastjóri verða að staðfesta umsókn. Í umsókn þarf að koma fram nafn, kennitala, heimilisfang og grunnskóli nemandans.
    • Rökstuðningur og skýring á ástæðum þarf að koma fram í umsókn eða fylgja með. Skýringar og rök geta komið frá foreldrum, kennurum, sérfræðiþjónustu, sérfræðingum, læknum (læknisvottorð), allt eftir eðli máls.
    • Aflað er nánari skýringa ef þess er talin þörf. Leitað er álits sérfræðinga eða annarra aðila ef þurfa þykir. Skólinn getur boðið nemanda annað nám í staðinn en ber ekki skylda til þess ef nemandi hefur fullnægt hæfniskröfum eða talin er ástæða til að draga úr námskröfum.
    • Skólastjóri skal skrá umsókn sem sérstakt mál og svara formlega með bréfi.
    • Leiðbeinandi reglur um undanþágu frá skólaíþróttum á grunnskólastigi, samkvæmt 15. gr. grunnskólalaga:
    • Formleg undanþágubeiðni frá skólaíþróttum skal berast skólastjóra undirrituð af foreldrum nemandans og viðkomandi nemanda. Fram skulu koma upplýsingar um nemandann, þ.e. nafn, kennitala, heimilisfang, grunnskóli, íþróttafélag og íþróttagrein með skýrum rökum fyrir undanþágubeiðninni.
    • Meðfylgjandi skal vera staðfesting frá viðkomandi íþróttafélagi um íþróttaiðkun nemandans í viðkomandi íþróttagrein.
    • Fylgja skal greinargerð frá viðkomandi þjálfara um stöðu nemandans. Við annarlok skili þjálfari mati á árangri og ástundun nemandans.
    • Nemandi sem náð hefur framúrskarandi árangri í sundi hjá íþróttafélagi fær að öllu jöfnu einungis undanþágu frá skólasundi, ekki öðrum þáttum skólaíþrótta.
    • Nemandi sem náð hefur framúrskarandi árangri í íþróttagrein sinni (önnur grein en sund) fær að öllu jöfnu ekki undanþágu frá skólasundi.
    • Skólastjóri veiti að öllu jöfnu einungis nemendum í 8.-10. bekk grunnskóla undanþágu frá skólaíþróttum, sem náð hafa framúrskarandi árangri í þeirri íþróttagrein sem þeir stunda. Undanþága er ekki veitt ef íþróttaiðkun hefur verið metin sem hluti valgreina.
    • Skólastjóri skal gæta jafnræðis við afgreiðslu undanþágubeiðna.
    • Skólastjóri veiti nemendum í 1.-7. bekk grunnskóla ekki undanþágu frá skólaíþróttum vegna íþróttaþjálfunar hjá íþróttafélagi.
    • Skólastjóri taki undanþágubeiðni ekki til afgreiðslu nema fullnægjandi upplýsingar liggi fyrir.
    • Skólastjóri grunnskóla hefur heimild, með vísan í 15. gr. laga um grunnskóla, til að veita einstökum nemendum tímabundna undanþágu frá skólaíþróttum að hluta til. Foreldrar viðkomandi nemanda skulu sjá til þess að hann vinni upp það sem hann kann að missa úr námi á meðan á undanþágu stendur.

     

    VIÐAUKIYFIRLIT YFIR REGLUGERÐIR 2012 SEM BYGGJA Á LÖGUMUM GRUNNSKÓLA, NR. 91/2008

    Reglugerð:

    • nr. 1111/2007 um námsgagnasjóð,
    • nr. 1150/2008 um innritun nemenda í framhaldsskóla,nr. 1157/2008 um skólaráð við grunnskóla,
    • nr. 242/2009 um Sprotasjóð leik-, grunn- og framhaldsskóla,nr. 435/2009 um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra könnunarprófa í4., 7. og 10. bekk grunnskóla,
    • nr. 531/2009 um heimakennslu á grunnskólastigi,nr. 656/2009 um skólaakstur í grunnskóla,
    • nr. 657/2009 um gerð og búnað grunnskólahúsnæðis og skólalóða,
    • nr. 658/2009 um mat og eftirlit í grunnskólum og upplýsingaskyldusveitarstjórna um skólahald,
    • nr. 896/2009 um skil og miðlun upplýsinga milli leik- og grunnskóla,
    • nr. 897/2009 um miðlun og meðferð upplýsinga um nemendur í grunnskólum  og rétt foreldra til aðgangs að upplýsingum um börn sín,
    • nr. 980/2009 um viðurkenningu grunnskóla sem reknir eru af öðrum en sveitarfélögum,
    • nr. 440/2010 um störf og starfshætti undanþágunefndar grunnskóla,
    • nr. 584/2010 um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskólaog nemendaverndarráð í grunnskólum,nr. 585/2010 um nemendur með sérþarfir í grunnskóla,
    • nr. 1040/2011 um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum,um skólagöngu fósturbarna í grunnskólum (Í vinnslu).