16

Nám samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla er skyldunám og því ekki um undanþágur að ræða frá aðalnámskrá. Þó eru í grunnskólalögum nokkur ákvæði sem heimila undanþágur frá skyldunámi og fyrirmælum aðalnámskrár.

Meginreglan er sú að börn byrja í grunnskóla á því almanaksári sem þau ná sex ára aldri. Samkvæmt bæði leik- og grunnskólalögum má þó flýta eða seinka skólabyrjun. Skólastjóri grunnskóla getur að uppfylltum ákveðnum skilyrðum heimilað að barn hefji skólagöngu fimm ára eða sjö ára.

Grunnskólalög heimila einnig að nemandi ljúki öllu námi grunnskóla á skemmri tíma en tíu árum. Hér er átt við að bráðgerir nemendur geti útskrifast úr grunnskóla fyrr en aldur þeirra segir til um. Er það lagt í hendur skólans með aðstoð sérfræðiþjónustu sveitarfélaga og að frumkvæði foreldra eða fengnu samþykki þeirra að meta hvenær og hvernig flýting af þessu tagi fer fram. Nemendur þurfa að ljúka öllu námi grunnskóla samkvæmt aðalnámskrá áður en þeir útskrifast úr grunnskóla á skemmri tíma en 10 árum. Þrátt fyrir heimild um að ljúka grunnskóla á skemmri tíma en tíu árum ber grunnskólum að bjóða bráðgerum nemendum upp á að dýpka þekkingu sína í námssviðum grunnskólans eða á fjölbreytt val í öðrum greinum, allt eftir áhuga þeirra.

  • Mennta- og menningarmálaráðherra getur veitt sveitarfélögum eða öðrum rekstraraðilum tímabundna heimild til að starfrækja tilraunaskóla eða gera tilraunir með ákveðna þætti skólastarfs. Í slíkum tilvikum er heimilt að veita tímabundna undanþágu frá aðalnámskrá grunnskóla. Getur slík undanþága t.d. varðað nám, starfstíma skóla, kennslutilhögun, stundafjölda, frávik frá viðmiðunarstundaskrá og frávik frá aðalnámskrá. Má þar nefna ef starfað er eftir viðurkenndum námskrám annarra landa eða alþjóðlegum námskrám og námsskipan. Slíkum tilraunum skal ávallt setja eðlileg tímamörk og mennta- og menningarmálaráðuneytið þarf alltaf að leggja mat á slíkar tilraunir þegar þeim lýkur. Hægt er að reka slíka tilraunaskóla sem almennan grunnskóla á vegum sveitarfélaga, sem deild innan grunnskóla eða sem sjálfstætt rekinn skóla sem nýtur viðurkenningar ráðuneytisins og þar með lögboðinna fjárframlaga frá sveitarfélögum.