10

Framhaldsskólar, einn eða fleiri sameiginlega, gera tillögu að námsbrautarlýsingu og leggja hana fyrir ráðuneyti til staðfestingar. Námsbrautalýsingar, sem hlotið hafa staðfestingu, eru þar með hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla.

Ráðuneytið mun gefa út námsbrautalýsingar, dæmabrautir, sem einstakir framhaldsskólar geta haft til viðmiðunar við gerð námsbrautalýsinga til framhaldsskólaprófa, starfsréttindaprófa, stúdentsprófa og annarra lokaprófa. Gert er ráð fyrir að dæmabrautir séu unnar í samstarfi við framhaldsskóla, háskóla og atvinnulíf og verði hafðar til hliðsjónar í staðfestingarferli ráðuneytisins. Ráðuneyti getur staðfest dæmabrautir þannig að þær verði hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla.

Við þróun námsbrauta leggur ráðuneytið áherslu á að nemendum gefist kostur á námslokum á ólíkum hæfniþrepum. Jafnframt sé tryggt að nemendum sem ljúka námi sem skilgreint er á fyrsta eða öðru hæfniþrepi, gefist kostur á áframhaldandi námi.

Námsbrautalýsingar skulu byggðar upp í samræmi við ákvæði almenns hluta aðalnám-skrár framhaldsskóla og skólanámskrár viðkomandi skóla. Í námsbrautarlýsingu skal m.a. fjallað um:

  • tengsl náms við atvinnulíf og/eða önnur skólastig,
  • skipulag náms, svo sem lokamarkmið, umfang náms, á hvaða hæfniþrepi námslokin eru skilgreind, hvort um er að ræða framhaldsskólapróf, próf til starfsréttinda, stúdentspróf, önnur lokapróf eða viðbótarnám við framhaldsskóla,
  • inntökuskilyrði og skilyrði um framvindu náms,
  • hvar og hvernig grunnþættir og lykilhæfni endurspeglast í almennri og sérhæfðri menntun námsbrautar,
  • nám, kennslu og námsmat,
  • uppbyggingu náms á hæfniþrep og áfangalýsingar.

Hér á eftir fara helstu reglur um gerð námsbrautalýsinga og gilda þær við skipulag allra námsbrauta óháð viðfangsefnum og nemendahópum.

  • Skólar geta samið áfangalýsingar í tengslum við gerð námsbrautalýsinga. Hver áfangalýsing er skipulögð sem sjálfstæð heild og ber sérstakt áfanganúmer.

    Námsáfangar skulu tengdir við hæfniþrep og er miðað við að lágmark 75% viðfangsefna áfangans falli innan skilgreinds þreps. Í áfangalýsingu skal koma fram hvaða þekkingu, leikni og hæfni nemendur þurfa að ná, krafa um undanfara og umfang áfangans í framhaldsskólaeiningum. Ráðuneytið birtir sniðmát um uppbyggingu áfangalýsinga og reglur um númerakerfi.

    Við upphaf kennslu skal liggja fyrir námsáætlun (kennsluáætlun) í öllum áföngum. Þar skulu meðal annars koma fram:

    •             viðmið um þekkingu, leikni og hæfni,
    •             almenn lýsing á viðfangsefnum áfangans,
    •             námsefni og verkefni,
    •             fyrirkomulag námsmats.