14

Framhaldsskólar eru ýmist sjálfstæðar ríkisstofnanir eða einkaskólar. Skólameistari ber ábyrgð á starfsemi skólans í umboði ráðherra eða ábyrgðaraðila einkaskóla, í samræmi við samþykktir, stofnskrá eða önnur stofnskjöl viðkomandi skóla.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið leggur áherslu á skuldbindingu framhaldsskóla um þjónustu við nemendur. Framhaldsskólum ber að veita nemendum þjónustu svo nám þeirra geti orðið sem árangursríkast. Þjónustan skal taka mið af mismunandi þörfum nemenda og taka til aðgangs að upplýsingum og gögnum, umsjónar, námsaðstöðu og þjónustu fyrir nemendur með sérþarfir.

Framhaldsskólar skulu setja fram skýrar verklagsreglur um réttindi og skyldur skóla og nemenda. Þær skulu birtast í skólanámskrá og vera aðgengilegar nemendum, forráðamönnum og öðrum þeim sem málið varðar. Mennta- og menningarmálaráðuneytið setur hér fram ýmsar reglur sem auðvelda eiga skólum að taka á álitamálum sem varða réttindi, skyldur og þjónustu við nemendur. Sumar þessara reglna eru einnig birtar í lögum og reglugerðum og er þá vísað í þær.

  • Skólareglur skulu birtar í skólanámskrá og vera öllum aðgengilegar. Þær skulu geyma ákvæði um eftirfarandi þætti:

    • skólasókn,
    • hegðun og umgengni,
    • námsmat, námsframvindu og prófareglur,
    • viðurlög vegna brota á skólareglum,
    • reglur um meðferð ágreiningsmála og um beitingu viðurlaga.

    Við ákvörðun skólameistara um rétt eða skyldu nemenda, svo sem brottvísun úr skóla í fleiri en einn skóladag eða að nemandum sé meinað að sækja kennslutíma í ákveðnu fagi eða námsgrein um nokkurt skeið, skal fylgja reglum stjórnsýslulaga um málsmeðferð. Ákvörðun skólameistara er kæranleg til mennta- og menningarmálaráðuneytis. Um málskot gilda ákvæði VII. kafla stjórnsýslulaga.

    • Framhaldsskólar skulu veita umsögn um skólasókn nemenda í námsferli og prófskírteini.

      Í skólasóknarreglum skal tilgreina:

      • réttindi og skyldur nemenda,
      • viðurlög við brotum á skólasóknarreglum,
      • hvernig fjarvistir nemenda vegna veikinda og annarra óhjákvæmilegra forfalla eru meðhöndlaðar,
      • hvernig farið er með mál ólögráða nemenda í ljósi fræðsluskyldu.

      Við setningu reglna um skólasókn skal taka sérstakt tillit til langveikra nemenda og nemenda sem eru tímabundið fjarverandi frá skóla vegna veikinda eða af öðrum óviðráðanlegum orsökum.

      Í samræmi við stjórnsýslulög og á grundvelli reglna um skólasókn er hægt að vísa nemendum úr einstökum áföngum eða úr skóla vegna lélegrar skólasóknar og skulu þeir þá áður hafa fengið skriflega viðvörun frá viðkomandi kennara, umsjónarkennara eða stjórnanda. Skal virða andmælarétt og gæta þess að forsjárforeldrum eða forráðamönnum ólögráða nemenda sé gert viðvart skriflega. Endanleg brottvikning er á ábyrgð skólameistara.